As much as we are going to miss Kata Fabbiano as IAA President, we welcome Páll Péturson who is taking over Kata´s responsibilities. Páll Pétursson fæddist 21. maí 1940 á bænum Steini í Skagafirði. Hann flutti til Keflavíkur árið 1946 og ólst þar upp. Stúdent frá Menntaskólanum að Laugarvatni árið 1960. Árin 1962-1967 var í háskólanámi í Kiel og Hannover í Þýskalandi og lærði þar matvælaefnafræði og
''food science''. Árin 1967 - 1976 vann við rannsóknarstörf í sjávarútvegi í Reykjavík og svo framkvæmdastjóri í eigin fiskvinnslufyrirtæki, Maris hf, í Þorlákshöfn.
Í janúar 1977 flutti til Nýfundnalands, Kanada með eiginkonu sinni, Hallveigu Njarðvík Gunnarsdóttur og dætrum, Tinnu og Hebu og vann þar hjá Fishery Products, sem yfirmaður gæðamála. Flutti til Massachusetts 1983 og var þar í 2ár, sem framkvæmdastjóri fiskvinnslu-fyrirtækis. Flutti 1985 til Maryland og bjó þar til 2004 og vann hjá Coldwater Seafood Corp., sem var dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem yfirmaður gæðamála í 17 ár.
Páll og Hallveig fluttu í júní 2004 til Menifee, Kalifornía, vegna þess að Tinna og fjölskylda hennar voru flutt til Irvine og Heba til San Francisco.
0 comments:
Post a Comment